Ég heiti Unnur María Gunnarsdóttir


Um mig:
Ég er 6. ára skvísa sem kom í heiminn á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. maí 2005. Ég var pínku pons eða tæpar 10 merkur og 48 & 1/2 cm. Mamma mín heitir Sigurlína Hrönn Einarsdóttir og pabbi minn heitir Gunnar Helgi Helgason. Svo á ég einn bróðir sem heitir Einar Örn. Við eigum heima í Skagafirði og finnst það voða gott. Ég á frábæra fjölskyldu í allar áttir sem finnst ég vera alger gullmoli. Við fæðingu kom í ljós að ég er með þrístæðu af 21. litningi eða aukalitning í öllum frumunum mínum sem er kallað Downs syndrom. Ég er óskaplega dugleg, sæt og blíð og uppáhald allra sem þekkja mig. Gullahringurinn mömmu, pabba og bróa







Annað:
Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd.

"Einstakur" lýsir fólki sem stjórnast ad rödd síns hjarta og hefur huga í hjörtu annarra. "Einstakur" á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt.

"Einstakur" er orð sem lýsir þér best.





NAUTIÐ

20. apríl ? 20. maí

Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. ?Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?? Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.






Friðbjörn Árni
Rakel Gígja
Sigurður Elvar
Valur Örn og Ernir Elí
Þórhildur Sara og Þorsteinn Dagur

Þú ert gestur nr. 25653